Hér að neðan eru upplýsingar og myndir af ýmsum nýlegum verkum Kælitækni á síðustu mánuðum.
Til að fá nánari upplýsingar smelltu þá á linkinn "senda fyrirspurn" eða "fá hringingu" hér að ofan og söluráðgjafar okkar upplýsa þig nánar. Þekking starfsmanna Kælitækni er víðtæk og ef þú hefur þörf fyrir eitthvað sem viðkemur kælingu eða frystingu þá eru allar líkur til þess að okkar þekking nýtist þér.
Einnig er velkomið að lita við hjá okkur í Rauðagerði, það er alltaf heitt á könnunni.
Krapakerfi í skip HB Granda
Um þessar mundir er HB Grandi að setja North Star krapakerfi í þrjú skipa sinna. Ásbjörn RE verður með North Star M-20 SS/ASME/SW/SB/LI krapaísvél sem afkastar 10 tonnum.
Krapakerfi um borð í Engey
Kælitækni afhenti krapakerfi um borð í Engey RE 1 í byrjun sumars. Krapakerfið samanstendur af alsjálfvirkum blöndutanki til að blanda saman sjó og vatni, North Star krapaísvél og krapatanki.
Frystitogarinn Lynx í Kanada
Nýr og glæsilegur frystitogari bættist í flota útgerðarfyrirtækisins Fishery Products Inc. í St.John?s á Nýfundnalandi ekki fyrir löngu.
Fiskþurrkun hjá Gullfiski
Nokkur ár eru síðan Kælitækni tók við dreifingu og sölu á Munters loftþurrkurum. Framan af voru þurrkararnir lítið þekktir og nánast einungis notaðir til að þurrka upp vatn eftir vatnstjón.
Fram Foods Iceland kaupir kæli-og frystibúnað
FRAM FOODS Iceland hf. í Reykjanesbæ festi nýlega kaup á búnaði fyrir kæli-og frystigeymslur sínar í gamla Sjöstjörnu húsinu.
Vel heppnuð heimsókn til Bitzer International í Þýskalandi
Síðast liðið vor var farin námskeiðsferð til Bitzer í Þýskalandi. Auk Sigurðar í Kælitækni sóttu námskeiðið þeir Þorsteinn Ragnarsson í Alkul, Jón Egilsson í Ísfrost og Benedikt Ásmundsson hjá Kæliverki
Cooltech selur frystibúnað í rækjuskip
Útgerðarfyrirtækið Amp Fisheries ltd. á Nýfundnalandi hefur fest kaup á frystibúnaði frá Cooltech í Kanada og Kælitækni.